Æfing

Komið þið sæl.

Æfingin á fimmtudag 14 feb verður kl 12:00 úti á sparkvelli.

OG fyrir þær stelpur sem hafa verið að mæta á miðvikudagsæfingar hjá 4 flokk kvenna þá er æfingin kl 19:00 á miðvikudag.

Kv Guðbjörn þjálfari

Íslandsmót í Futsal innanhússknattspyrnu - stutt umfjöllun

Sæl, öllsömul!

Í dag, 10. febrúar, var leikið í Íslandsmóti í Futsal innanhússknattspyrnu, A-riðli. Leikið var í íþróttahúsinu á Álftanesi. Þrjú lið mættu til keppni, þ. e. Álftanes, Fjölnir og Fylkir, en lið ÍBV mætti ekki til keppni. Af þeim sökum var leikin tvöföld umferð en fyrri umferðin var sú sem gilti. Leikir allra liða við ÍBV eru skráðir sem 3-0 sigur.

Úrslit urðu sem hér segir (nöfn markaskorara innan sviga):

Álftanes – Fylkir: 0-2.
Álftanes – Fjölnir: 1-0 (Sylvía).
Álftanes – Fylkir: 0-3.
Álftanes – Fjölnir: 2-1 (Sylvía 2).

Úrslit þessi tryggðu liði Álftaness annað sæti riðilsins og mögulega sæti í úrslitakeppni sem haldin verður síðar. 

Heilt yfir erum við þjálfarar nokkuð ánægðir með frammistöðuna. Nokkuð illa gekk þó að nýta marktækifæri en nóg var af þeim og því gáfu úrslit leikja ekki rétta mynd af gangi leikja. Má til að mynda nefna að tveir ósigrar gegn Fylki voru langt frá því að gefa rétta mynd af gangi þeirra leikja, t. d. pressaði Álftanes Fylki talsvert í báðum leikjum. Snarpar skyndisóknir og líkamlegur styrkur var þó það sem Fylkir hafði fram yfir okkar stúlkur.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.

Íslandsmót í Futsal innanhússknattspyrnu

Sæl, öllsömul!

Íslandsmót í Futsal innanhússknattspyrnu mun fara fram á sunnudag, 10. febrúar, en mótinu var frestað um síðustu helgi. Sömu stúlkur og þá voru boðaðar eru nú boðaðar.

Mótið hefst kl. 13 en leikið verður á Álftanesi. Mótherjar eru Fjölnir, Fylkir og ÍBV en nánari upplýsingar um leikjafyrirkomulag má nálgast undir eftirfarandi slóð á heimasíðu Knattspyrsambands Íslands: http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=29351.

Stúlkur þurfa að vera mættar kl. 12 í íþróttahúsið umræddan dag.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.

Futsal

Komið þið sæl.

Íslandmót í futsal sem átti að fara fram sunnudaginn hefur verið frestað til sunnudagsins 11 feb og verður það haldið hér á Álftanesinu.

Nánari upplýsingar koma síðar.

Þær stelpur sem hafa verið að spila með 4 flokk eru boðaðar til leiks við FH á morgun nánari upplýsingar munu vera settar inn á 4 flokks síðunna.

 

Kv Birgir og Guðbjörn