Þennan póst fékk ég sendan í dag frá Akranesi.
Að beiðni félaga, sem senda meirihluta keppenda á Norðurálsmótið ár hvert, hefur verið ákveðið að færa mótið fram um 1 viku og halda það í þetta skiptið 10. - 12. júní í sumar. Beiðni félaganna kemur í kjölfar EM - dráttar hjá karlalandsliðinu sem leikur í riðlakeppninni 14., 18. og 22.júní, en fjöldi foreldra og þjálfara hyggst ferðast til Frakklands og sjá leiki Íslands. Við höfum verið í sambandi við þjálfara 26 félaga sem senda keppendur á mótið og flestir vilja að mótið verði fært en einungis eitt lið mótmælti breytingunni.
Það sem einnig styður ákvörðunina er að KSÍ stefnir að því að hafa leiki allra flokka í Íslandsmóti í algjöru lágmarki á meðan riðlakeppni EM stendur ca. 13. - 23. júní.
Við gerum okkur grein fyrir að þessi breyting kemur illa við einhverja og biðjumst við velvirðingar á því en stór meirihluti ræður mestu um þessa ákvörðun !
Það er stórt mál að færa til mótið og enn eru nokkrir endar sem eru óleystir, en við munum leysa þá og halda frábært Norðurálsmót í sumar eins og undanfarin ár.
Bestu kveðjur,
Mótsstjórn Norðurálsmótsins Akranesi