Um síðustu helgi keppti stór hópur blakara UMFÁ á árlegu móti Stjörnunnar í Garðabæ. Alls 3 kvennalið og 1 1/2 karlalið. Úrslit má smá hér; http://www.blak.is/default.asp?page=upplvefur/deildir.asp.
Alls æfa 25-30 konur blak hjá félaginu tvisvar sinnum í viku og um 15 karlar einnig tvisar sinnum í viku, sameiginlega með liðið Stór-Stjarna úr Garðabæ. Þjálfari beggja er Zdravgo Demirev.
Blakdeild kvenna á Álftanesi fór með 3 lið á öldungamót BLÍ dagana
5. – 7. maí s.l., sem að þessu sinni var haldið í Vestmannaeyjum.
Spilað var í 12 kvennadeildum og átti Álftanes sigurvegarana í 3. deild,
silfurverðlaunahafana í 6. deild og þriðja liðið lenti svo í 4. sæti í 9.
deild. Konurnar tóku fyrst þátt í öldungamóti á Akureyri árið 2005 og
voru þá með 1 lið í 8. deild og lentu í 3. sæti, svo hefur leiðin legið upp
á viðog þátttökuliðum Álftaness fjölgað.