UMFÁ spilar í B-riðli
Ritað af gislisig | September 1, 2010
Það eru 18 lið skráð til leiks í 2.deildina í ár. Það verður spilað í tveimur 9 liða riðlum og var dregið í þá í dag, þeir eru þannig skipaðir:
A-riðill
ÍA - Patrekur - ÍG - Árbog - KKFÞórir - Svartúlfur - Víkingur Ólafsvík - Smári V - UMFBolungarvík
B-riðill
Álftanes - HK -KV - Sindri - Hekla - Reynir - UMFH - Fram - ÍBV
Fyrsi leikur okkar mann er 4.október gegn Fram í Forsetahöllinni.
Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »
Hraðmót 11.-12.september
Ritað af gislisig | August 27, 2010
11 og 12 september næstkomandi fer fram hraðmót í íþróttahúsi Álftanes. Ekki liggur ljóst fyrir hvaða lið koma til með að spila á mótinu en frekari upplýsinga er að vænta á næstu dögum.
Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »
Ný stjórn og undirbúningstímabilið hafið
Ritað af gislisig | August 18, 2010
Búið er að mynda nýja stjórn KKDÁlftanes. Í henni sitja Kobbi, Simmi, Gutti, Ingimar(gjaldkeri) og Gísli(formaður). UMFÁ er skráð til leiks í íslandsmótið líkt og síðustu ár og einnig í bikarkeppni KKÍ. Vel gekk síðasta vetur og er von bundin um að það verði áfram. Einhverjar breytingar verða á hópnum en Valur Valsson er að flytja norður og eins er Steini Jobba fluttur í heimahagana í Grundafjörð. Þeirra verður sárt saknaðn Einnig gætu fleiri lykilmenn söðlað um en ekkert komið á hreint í þeim efnum. En inn er að koma nýtt blóð og ætlar Ragnar Arinbjarnarson að taka fram skóna að nýju og einnig munu ungir drengir af Álftanesi spila sína fyrstu meistarflokksleiki í vetur. Í síðustu viku hófst formlegt undirbúningstímabil hjá okkar mönnum og kemur Gísli nokkur Sigurðarson til með að stjórna æfingum til að byrja með. Mikil tilhlökkun er fyrir komandi tímabil eins og alltaf og verður forvittnilegt að sjá hvaða fyrikomulag á 2.deild verður í vetur.
Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »
Úrslitakeppni lokið
Ritað af finnurtg | April 21, 2010
UMFÁ lauk tímabilinu með því að taka þátt í úrslitakeppni 2. deildar á Selfossi, helgina 16.-18. apríl síðastliðinn.
Átta lið komust í úrslitakeppnina og var þeim skipt í tvo undanriðla. Álftanes lenti í B-riðli með ÍG, ÍBV og Árborg. Í A-riðli léku Litháar, HK, Laugdælir og Leiknir.
Föstudagur
Fyrsti leikur úrslitakeppninnar var gegn ÍG. Hann fór fram kl 19 í Iðu. Löng saga stutt; ÍG slátraði UMFÁ með blöndu af stórbrotinni hittni og lítilli mótspyrnu frá okkur. Leikurinn fór 74-113 og UMFÁ í vondum málum. [Tölfræði]
Leikmenn Álftaness héldu hnuggnir í bústað þar sem farið var í heitan pott, horft á gamanþætti og póker var leikinn.
Laugardagur
Á hádegi á laugardeginum var næsti leikur spilaður gegn ÍBV. Það var ljóst að Álftanes þurfti að vinna þennan leik til að komast í umspil. Sú varð raunin. Álftanes sigraði nokkuð örugglega, 88-59. [Tölfræði]
Þriðji og síðasti leikur riðilsins var svo leikinn klukkan 17 gegn heimamönnum í Árborg. Liðið sem ynni þennan leik myndi leika gegn efsta liði A riðils. Álftanes hélt öruggri forystu allan tímann og lauk leik með sigri, 94-80. [Tölfræði]
Álftanes var á þessum punkti komið í umspil um að komast upp í 1. deild. Næsti leikur var skráður kl 10 á sunnudagsmorgni gegn efsta liði A-riðils, Laugdælum. Liðið sem ynni þennan leik kæmist upp í 1. deild!
Það var nokkuð bjartara yfir leikmönnum í bústaðnum, spil voru spiluð, söngvar sungnir og horft á Reservoir Dogs við mikla kátínu.
Sunnudagur
Liðið vaknaði upp fyrir allar aldir klukkan 7 og tók saman bústaðinn. Svo var haldið á Selfoss að hita upp gegn Laugdælum.
Leikurinn var jafn fyrstu 15 mínúturnar en þá tóku Laugdælir stjórnina á leiknum og voru fljótlega komnir í 10 stiga mun. Sá munur jókst þegar leið á seinni hálfleik og ljóst að UMFÁ var ekki á leið upp um deild. Leiknum lauk með sigri Laugdæla 101-74. [Tölfræði]
Þá var ljóst að UMFÁ myndi spila um 3. sæti gegn ÍG, liðinu sem sigraði okkur með 39 stiga mun í fyrsta leik úrslitakeppninnar. Framundan var erfitt verkefni.
Leikurinn hófst á slaginu 16. Það er óhætt að segja að þarna hafi mæst stálin stinn, því liðin skiptust á að vera með forystu fyrstu 30 mínútur leiksins. Þá tók Álftanes fimm stiga forystu og hélt henni þar til um tvær mínútur voru eftir af leiknum þegar ÍG minnkaði muninn í eitt stig.
Einkennileg atburðarás tók við eftir það þegar brotið var á Vali í sniðskoti, Álftanesi dæmdur bolti í innkast og karfa dæmd góð. Þessu vildu leikmenn ÍG ekki una og lauk leiknum með tvöfaldri tæknivillu á leikmann ÍG. Álftanes sigraði leikinn 86-82. [Tölfræði]
Álftanes lauk því keppni í vetur í 3. sæti 2. deildar, sem verður að teljast viðunandi árangur. Okkar besti hingað til.
Við þökkum fyrir tímabilið!
Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »
Úrslitakeppnin fer fram á Selfossi um helgina
Ritað af gislisig | April 13, 2010
Úrslitakeppni 2. deildar verður háð um helgina og fer hún fram á Selfossi og á Laugarvatni að hluta. Okkar menn drógust í B-riðill ásamt ÍG, Árborg og ÍBV og fara allir leikirnir fram í Iðuhúsinu. Dagskráin er sem hér segir:
Dagskrá:
A-riðill:
16-04-2010 18:30 Laugdælir - HK Laugarvatn
16-04-2010 20:30 Leiknir - Felag Lithaa Laugarvatn
17-04-2010 10:00 Leiknir - HK Vallarskóli
17-04-2010 12:00 Laugdælir - Felag Lithaa Vallarskóli
17-04-2010 15:00 Felag Lithaa - HK Vallarskóli
17-04-2010 17:00 Laugdælir - Leiknir Vallarskóli
B-riðill:
16-04-2010 18:30 Álftanes - ÍG Iða
16-04-2010 20:30 Árborg - ÍBV Iða
17-04-2010 10:00 Árborg - ÍG Iða
17-04-2010 12:00 Álftanes - ÍBV Iða
17-04-2010 14:00 ÍBV - ÍG Iða
17-04-2010 16:00 Álftanes - Árborg Iða
Allir að mæta að styða drengina til sigurs….ÁRAM ÁLFTANES !!
Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »
Tölfræðin gegn Reyni
Ritað af finnurtg | March 23, 2010
Að neðan er tölfræðin úr leik UMFÁ gegn Reyni Sandgerði sem fram fór síðastliðinn föstudag, 19. mars, í Sandgerði. Leiknum lauk með sigri UMFÁ 84-76.
Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »
Síðasti leikur tímabilsins
Ritað af finnurtg | March 19, 2010
UMFÁ leik gegn Reyni í kvöld á heimavelli Reynis, í Sandgerði.
UMFÁ byrjaði betur og hafði yfirhönd allt fram í síðasta leikhluta þegar Reynir tók upp á því að misnota ekki skot á nokkra mínútna kafla. Heimamenn komst yfir í kjölfarið og leikurinn var tvísýnn þegar 4 mínútur voru eftir.
Leikmenn UMFÁ tóku sig þá saman í andlitinu og kláruðu leikinn með viðunandi varnarleik.
Úrslit: 84-76 fyrir UMFÁ og 13-2 tímabil í höfn. Úrslitakeppni 2. deildar verður svo helgina 16.-18. apríl næstkomandi. Nánar auglýst síðar.
Tölfræði kemur síðar.
Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »
Myndir frá UMFÁ gegn KKF Þóri
Ritað af finnurtg | March 16, 2010
Hér má sjá myndir frá leik UMFÁ gegn KKF Þóri sem fram fór 8. mars síðastliðinn og lauk með sigri UMFÁ, 93-80.
Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »
Tölfræði gegn KKF Þóri
Ritað af finnurtg | March 9, 2010
Hér er tölfræðin úr leik UMFÁ gegn KKF Þóri, sem fram fór í gærkvöldi (8. mars 2010) á Álftanesi og lauk með sigri heimamanna 93-80.
Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »
Síðasti heimaleikur tímabilsins að baki
Ritað af finnurtg | March 9, 2010
Í gærkvöldi tók UMFÁ á móti KKF Þóri í forsetahöllinni á Álftanesi. Fyrir leikinn var UMFÁ búið að tryggja sér efsta sæti í riðlinum og KKF Þórir sat á botni hans.
Leikurinn byrjaði jafn og fór fyrsti fjórðungur 22-21 fyrir gesti við litla hrifningu Snorra þjálfara. Vörnin var fjarverandi og leikmenn að brjóta of mikið á andstæðingum.
Annar fjórðungur var andstæða þess fyrsta hvað vörn varðar. KKF Þóri var haldið í 11 stigum á meðan heimamenn settu 17. Staðan í hálfleik 38-33 fyrir UMFÁ, eftir glæsilega þriggja stiga körfu á lokasekúndu frá Davíð.
Þriðji fjórðungur var jafn og spennandi þar sem liðin skiptust á að skora. Álftanes náði þó smámsaman að auka muninn. KKF Þórir minnkaði muninn niður í 10 stig fyrir lok leikhlutans.
Fjórði leikhluti einkenndist af slappri vörn og talsverðu stigaskori hjá báðum liðum. Þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum var UMFÁ 17 stigum yfir. Tók þá talsvert kæruleysi við og bæði lið skoruðu eftir stuttar sóknir, KKF Þórir á vítalínunni en UMFÁ í hraðuppsóknum.
Leikurinn fór 93-80 fyrir UMFÁ.
Tölfræði og myndir koma síðar.
Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »
« Previous Entries