Nýjustu athugasemdirnar

Nýlegar færslur

Eldri færslur

Hafa samband

karfa.alftanes@gmail.com

« Myndir úr leiknum gegn Mostra | Heim | Tölfræðin úr leik UMFÁ gegn Mostra »

UMFÁ - Mostri

Ritað af admin | December 10, 2009

Okkar menn áttu leik við Mostra á mánudaginn 7. des og féll sá leikur því miður með Mostramönnum í framlengdum leik.

Okkar menn byrjuðu mun betur í sókn í þessum leik en í HK leiknum og náðum við að nýta fyrstu 3 sóknir okkar en því miður þá náðu Mostramenn að nýta sínar sóknir líka. En eftir 3 sóknir fóru dómaranir að taka völdin og dæmdu á hvert einasta smáatriði og endaði það með að Gutti fékk 3 villur á 2 mínútum og þurfti að fara útaf og voru okkar menn strax byrjaðir að kvarta í dómaranum og var Snorri kominn með viðvörun um að okkar menn ætti að hætta að kvarta eða fá tæknivillu. Eftir það hættu okkar menn að kvarta og einbeita sér að körfubolta.

Leikurinn hélt áfram að vera mjög stopul vegna flauta frá dómaranum en okkar menn fóru þá að hætta að slá (jafn mikið og þeir gerðu) og spila vörn með fótunum. Þrátt fyrir þetta leiddu Mostra menn eftir fyrsta leikhluta 19-25. Valur og Sibbi sáu fyrst og fremst um stigaskorið í fyrsta leikhluta.

Í öðrum leihluta þá tókum við okkur á og fórum að gefa aðeins í og spila almennilega vörn. Sérstaklega tókst okkur að hætta að brjóta jafn mikið af okkur og náðum því að ná upp almennilegu flæði í leiknum. Með flottri spilamennsku náðum við að komast yfir og halda vörninni þéttri. Í hálfleik var staðan 38-36 og náðum við því að halda Mostra í 11 stigum í 2. Leikhluta!

Í þriðja leikhluta þá hættum við að spila jafngóða vörn og leyfðum Mostramönnum að keyra sína sók á 2 leikmönnum Nr. 13 og Nr. 9 sem að skoruðu örugglega 80% stiga Mostramanna í leiknum. 13 keyrði inn og nr. 9 skaut fyrir utan! Þetta var því ekki mjög góður leikhluti hjá okkur þar sem við fórum aftur að brjóta klaufalega af okkur og hleyptum Mostramönnum of oft á línuna þar sem vítanýting þeirra var mjög góð. Eftir 3. Leikhluta var staðan 55-60 og leyfðum við því Mostramönnum að skora 24 stig í leihlutanum.

Í fjórða leikhluta fór leikurinn að verða spennandi. Mostramenn náðu mest 8 stiga forrystu þegar nokkrar mínútur voru eftir en við náðum að saxa á þetta með flottum körfum frá Davíð, Val og Simma sem að sáu um stigaskorið að utan á meðan Sibbi sá um að skora inní teig.

Lokamínúturnar voru æsispennandi og þegar 30 sekúndur voru eftir náði Davíð að jafna leikinn fyrir UMFÁ og fengu því Mostramenn 1 sókn í viðbót. Við náðum að stoppa þá og fara í hraðaupphlaup sem endaði með galopnu 3ja stiga skoti frá Davíð en því miður vildi boltinn ekki detta ofaní. Niðurstaðan var því fyrsta framlenging vetursins.

Í framlengingu byrjðuðu okkar menn betur þar sem við skoruðum fyrstu 5 stig framlengingarnar en því miður náðum við ekki að halda þeim mun og náðu Mostra menn að jafna leikinn. Eftir klaufalegann tapaðan bolta þegar 20 sek voru eftir fengu Mostramenn eina sókn í viðbót. Hún virtist vera að fjara út í vitleysu þegar leikmaður nr. 13 hjá þeim tók erfiðan þrist og setti ofaní! Þá voru 4 sekúndur eftir og náðu okkar menn að stillla uppí eina lokasókn. Í henni fékk Sibbi erfitt 3ja stiga skot sem því miður hitti ekki og því gátu Mostramenn fagnað sigrinum á meðan okkar menn trúðu ekki úrslitunum.

Niðurstaða:

Áttum mjög flotta spretti og áttum alveg að geta tekið sigurinn af Mostramönnum en náðum því miður ekki að halda út leikinn og töpuðum honum frá okkur! Leyfðum tveimur leikmönnum Mostra of mikið rými til að athafna sig á meðan aðrir gerðu lítið á þeim bæ!

Flokkar: Óflokkað |

Ein athugasemd á “UMFÁ - Mostri”

  1. Þorri segir:
    December 10th, 2009 at 16:38

    Mostri, lið sem æfir ekki…….

Athugasemdir