Nýjustu athugasemdirnar

Nýlegar færslur

Eldri færslur

Hafa samband

karfa.alftanes@gmail.com

« Myndir frá UMFÁ gegn Reyni Sandgerði | Heim | Tölfræðin gegn Mostra »

UMFÁ sigrar Mostra í Stykkishólmi

Ritað af finnurtg | February 21, 2010

Mostri tók á móti UMFÁ á heimavelli sínum í dag. Ljóst var í upphafi að Mostramenn yrðu fáir og þreytulegir eftir fögnuð gærkvöldsins á bikartitli Snæfellinga í Subway bikarnum.

Leikurinn var nokkuð hraður til að byrja með. UMFÁ misnotaði ekki þriggja stiga skot fyrstu mínúturnar og uppskar vænlega stöðu eftir fyrsta fjórðung, 30-17, þar af Almar með 9 stig og Gísli með 5 stoðsendingar og körfu frá miðju á lokasekúndu, sem fagnað var með hópsöngi Gísla til heiðurs.

Annar leikhluti byrjaði vel fyrir Álftanes og var munurinn mest 18 stig, 35-17. Þá tók við jafn hluti þar sem liðin skiptust á að skora og leikhlutinn fór 15-13 fyrir UMFÁ. Samtals 45-30 í hálfleik.

Þriðji leikhluti einkenndist af töpuðum boltum og engu sóknarfrákasti Álftaness. Á móti kom að pressuvörn Álftaness framkallaði tapaða bolta hjá Mostra og verri skot. Leikhlutinn fór 16-15 fyrir Álftanesi og liðið alls búið að tapa 15 boltum.

Fjórði leikhlutinn var svipaður þeim þriðja þar sem liðin skiptust á að tapa boltum og spila nokkuð stífa vörn. Sumir myndu segja of stífa. Leikhlutinn fór 16-16 og sigur UMFÁ í höfn, 77-61.

Með sigri þessum hefur Álftanes nánast tryggt sér efsta sæti B riðilsins þegar þrír leikir eru eftir. Tölfræði kemur síðar.

Flokkar: Óflokkað |

5 athugasemdir á “UMFÁ sigrar Mostra í Stykkishólmi”

  1. Bjössi segir:
    February 22nd, 2010 at 16:51

    Heyrst hefur að Dorrit hafi dansað um allt Álftanesið með Óla á bakinu þegar hún fékk fregnir af þessum sigri.

  2. Gísli segir:
    February 22nd, 2010 at 18:06

    Það er ekki mikið verið að minnast á Bözzer hjá gamla !! :)

  3. Snorri Örn segir:
    February 22nd, 2010 at 22:55

    Þú gleymdir að kalla spjaldið! Var samt hrikalega flott skot og verðskuldar athygli.

  4. Gísli segir:
    February 23rd, 2010 at 12:43

    …hahahaah……Finnur !!!….og skot frá miðju !!!…..er þetta allt !!?….fór skotið ofan í ?? :)

    Ég treð bara í næsta leik og fæ vonandi betra comment á það !!

  5. finnurtg segir:
    February 24th, 2010 at 22:19

    Mig grunaði að fólk geti lagt tvo og tvo saman. Annars legg ég til að þú ritir pistlana hér eftir. Ég ræð ekki við þetta.

Athugasemdir