« Tölfræðin gegn Litháen | Heim | Tölfræði gegn KKF Þóri »
Síðasti heimaleikur tímabilsins að baki
Ritað af finnurtg | March 9, 2010
Í gærkvöldi tók UMFÁ á móti KKF Þóri í forsetahöllinni á Álftanesi. Fyrir leikinn var UMFÁ búið að tryggja sér efsta sæti í riðlinum og KKF Þórir sat á botni hans.
Leikurinn byrjaði jafn og fór fyrsti fjórðungur 22-21 fyrir gesti við litla hrifningu Snorra þjálfara. Vörnin var fjarverandi og leikmenn að brjóta of mikið á andstæðingum.
Annar fjórðungur var andstæða þess fyrsta hvað vörn varðar. KKF Þóri var haldið í 11 stigum á meðan heimamenn settu 17. Staðan í hálfleik 38-33 fyrir UMFÁ, eftir glæsilega þriggja stiga körfu á lokasekúndu frá Davíð.
Þriðji fjórðungur var jafn og spennandi þar sem liðin skiptust á að skora. Álftanes náði þó smámsaman að auka muninn. KKF Þórir minnkaði muninn niður í 10 stig fyrir lok leikhlutans.
Fjórði leikhluti einkenndist af slappri vörn og talsverðu stigaskori hjá báðum liðum. Þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum var UMFÁ 17 stigum yfir. Tók þá talsvert kæruleysi við og bæði lið skoruðu eftir stuttar sóknir, KKF Þórir á vítalínunni en UMFÁ í hraðuppsóknum.
Leikurinn fór 93-80 fyrir UMFÁ.
Tölfræði og myndir koma síðar.
Flokkar: Óflokkað |