« Andlegur sigur | Heim | Tölfræði og myndir UMFÁ-Snæfell »
UMFÁ-Snæfell - 32ja liða úrslit Subway Bikarkeppnarinnar
Ritað af admin | November 10, 2009
UMFÁ tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í gærkvöldi en þá tóku þeir á móti Úrvalsdeildarliði Snæfells í 32ja liða úrslitum Subwaybikarsins.
Álftnesingar komu sterkir til leiks en allir leikmenn liðsins höfðu safnað afar myndarlegu yfirvaraskeggi sem virtist taka Snæfellingana á taugum við byrjun leiks. Eftir að Snæfellingar skoruðu fyrstu körfu leikins kom UMFÁ til baka og náði að halda jöfnu í stöðunni í 4-4. Þá hvarf taugaspenna Snæfellinga og mundu þeir aftur að þeir eru í úrvalsdeild á meðan UMFÁ er í 2. deild. Þeir tóku að raða stigunum á heimamenn og áður en varði var staðan orðin 9-28 fyrir gestina og fyrsti leikhluti búinn. Snæfell skipti þá landsliðsmönnum sínum út fyrir sterka úrvalsdeildarmenn. Þar fór fremstur í flokki Jón Ólafur sem raðaði niður stigum alls staðar af vellinum.
Álftnesingar áttu á þessu tímabili í miklum erfiðleikum að halda boltanum og náðu Snæfellingar umtalsverðum stigafjölda úr hraðaupphlaupum. Eftir leikhlé Álftaness náðu heimamenn að róa sig niður. Jafnaðist þá aðeins á milli liða en var samt sem áður 37 stiga munur í leikhléi eða 22-59.
Í seinni hálfleik var meira af því sama á boðstólnum. Álftanes átti í erfiðleikum með að halda boltanum og í meiri erfiðleikum að setja boltann í körfuna á meðan Snæfellingar hlupu heimamenn í kaf. Á þessum tímapunkti tóku þeir háloftasýningu en Álftnesingar héldu sig á jörðinni og reyndu frekar við sniðskotin.
Á endanum náðu Snæfellingar að vinna leikinn með 73ja stiga mun eða 49-122. Stigahæstir hjá Álftanesi voru Sibbi með 16 stig, Simmi með 8 stig og Stebbi með 7 stig. Stigahæstir hjá Snæfellingum voru Jón Ólafur með 24 stig og Sveinn með 18 stig og nokkrar góðar troðslur.
Körfuboltinn var ekki með okkar mönnum þetta kvöldið en gefum þeim gott klapp fyrir tignarleg yfirvararskegg og góða sviðsframkomu.
Flokkar: Óflokkað |
August 20th, 2010 at 19:04
Thank you for this post, It was a interesting read which was very helpful.