Nýjustu athugasemdirnar

Nýlegar færslur

Eldri færslur

Hafa samband

karfa.alftanes@gmail.com

Síðasti heimaleikur tímabilsins að baki

Ritað af finnurtg | March 9, 2010

Í gærkvöldi tók UMFÁ á móti KKF Þóri í forsetahöllinni á Álftanesi. Fyrir leikinn var UMFÁ búið að tryggja sér efsta sæti í riðlinum og KKF Þórir sat á botni hans.

Leikurinn byrjaði jafn og fór fyrsti fjórðungur 22-21 fyrir gesti við litla hrifningu Snorra þjálfara. Vörnin var fjarverandi og leikmenn að brjóta of mikið á andstæðingum.

Annar fjórðungur var andstæða þess fyrsta hvað vörn varðar. KKF Þóri var haldið í 11 stigum á meðan heimamenn settu 17. Staðan í hálfleik 38-33 fyrir UMFÁ, eftir glæsilega þriggja stiga körfu á lokasekúndu frá Davíð.

Þriðji fjórðungur var jafn og spennandi þar sem liðin skiptust á að skora. Álftanes náði þó smámsaman að auka muninn. KKF Þórir minnkaði muninn niður í 10 stig fyrir lok leikhlutans.

Fjórði leikhluti einkenndist af slappri vörn og talsverðu stigaskori hjá báðum liðum. Þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum var UMFÁ 17 stigum yfir. Tók þá talsvert kæruleysi við og bæði lið skoruðu eftir stuttar sóknir, KKF Þórir á vítalínunni en UMFÁ í hraðuppsóknum.

Leikurinn fór 93-80 fyrir UMFÁ.

Tölfræði og myndir koma síðar.

Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »

Tölfræðin gegn Litháen

Ritað af finnurtg | March 1, 2010

Tölfræðin úr leik UMFÁ gegn Litháen, sem fram fór í gær (28.02.10), er að neðan

Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »

Úrslit landsleiks UMFÁ gegn Litháen

Ritað af finnurtg | February 28, 2010

UMFÁ kíkti í Voga, Vatnsleysuströnd í dag að spila gegn Litháen sem hafði unnið fjóra leiki í röð fyrir þennan leik.

Þegar tæpar 11 mínútur voru eftir var staðan 67-51 fyrir Litháen. Þá tók við ótrúlegur kafli hjá UMFÁ þar sem Litháen var yfirskorað 41-10. Leiknum lauk með sigri Álftaness, 92-77.

Stigahæstir hjá Álftanesi voru Valur með 16 stig og Steini með 15. Alls voru 5 leikmenn Álftaness með 10 stig eða meira.

Nánari tölfræði kemur síðar.

Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »

Tölfræðin gegn Mostra

Ritað af finnurtg | February 22, 2010

Tölfræðin úr leik UMFÁ gegn Mostra í Stykkishólmi, sem fram fór í gær 21. febrúar og lauk með sigri UMFÁ 77-61, er að neðan:

Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »

UMFÁ sigrar Mostra í Stykkishólmi

Ritað af finnurtg | February 21, 2010

Mostri tók á móti UMFÁ á heimavelli sínum í dag. Ljóst var í upphafi að Mostramenn yrðu fáir og þreytulegir eftir fögnuð gærkvöldsins á bikartitli Snæfellinga í Subway bikarnum.

Leikurinn var nokkuð hraður til að byrja með. UMFÁ misnotaði ekki þriggja stiga skot fyrstu mínúturnar og uppskar vænlega stöðu eftir fyrsta fjórðung, 30-17, þar af Almar með 9 stig og Gísli með 5 stoðsendingar og körfu frá miðju á lokasekúndu, sem fagnað var með hópsöngi Gísla til heiðurs.

Annar leikhluti byrjaði vel fyrir Álftanes og var munurinn mest 18 stig, 35-17. Þá tók við jafn hluti þar sem liðin skiptust á að skora og leikhlutinn fór 15-13 fyrir UMFÁ. Samtals 45-30 í hálfleik.

Þriðji leikhluti einkenndist af töpuðum boltum og engu sóknarfrákasti Álftaness. Á móti kom að pressuvörn Álftaness framkallaði tapaða bolta hjá Mostra og verri skot. Leikhlutinn fór 16-15 fyrir Álftanesi og liðið alls búið að tapa 15 boltum.

Fjórði leikhlutinn var svipaður þeim þriðja þar sem liðin skiptust á að tapa boltum og spila nokkuð stífa vörn. Sumir myndu segja of stífa. Leikhlutinn fór 16-16 og sigur UMFÁ í höfn, 77-61.

Með sigri þessum hefur Álftanes nánast tryggt sér efsta sæti B riðilsins þegar þrír leikir eru eftir. Tölfræði kemur síðar.

Flokkar: Óflokkað | 5 athugasemdir »

Myndir frá UMFÁ gegn Reyni Sandgerði

Ritað af finnurtg | February 18, 2010

Sigurgeir að gera góða hluti.

Myndir frá leik UMFÁ gegn Reyni Sandgerði eru komnar á netið hér.

Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »

Tölfræðin gegn HK

Ritað af finnurtg | February 13, 2010

Tölfræðin úr leik UMFÁ gegn HK, sem fram fór 8. febrúar síðastliðinn, er hér að neðan. Leikurinn fór 83-75 fyrir UMFÁ.

Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »

Sigur gegn HK

Ritað af finnurtg | February 8, 2010

UMFÁ sigraði HK á Álftanesi í kvöld 83-75 eftir nokkuð spennandi og tvísýnan leik.

Tölfræði og myndir síðar.

Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »

Tölfræði og video gegn Reyni S

Ritað af finnurtg | February 2, 2010

Tölfræðin úr heimaleik UMFÁ gegn Reyni Sandgerði:

Hér er svo myndband frá því helsta úr leiknum:

Flokkar: Óflokkað | 1 athugasemd »

Sigur gegn Reyni Sandgerði

Ritað af finnurtg | February 1, 2010

Körfuknattleikslið Álftaness tók á móti Reyni Sandgerði í Forsetahöllinni í kvöld en Reynir var fyrir leikinn í 2. sæti riðilsins. Með sigri hefðu þeir getað jafnað UMFÁ í efsta sæti.

Leikurinn byrjaði  af hörku og náði Reynir að sigra fyrsta leikhluta naumt. Annar leikhluti var jafnari og troðfullur af villum og vítaskotum. Í hálfleik voru Reynir 34-33 yfir.

Í 3. leikhluta losnaði um skotstífluna hjá Álftanesi og vörn var spiluð í fyrsta sinn í leiknum. Álftanes sigraði leikhlutann nokkuð örugglega. Fjórði leikhlutinn á sömu nótum og sá þriðji og leiknum lauk með nokkuð öruggum sigri Álftaness, 74-63.

Tölfræði og myndir síðar.

Flokkar: Óflokkað | Engar athugasemdir »


« Previous Entries Next Entries »