Leikur í Faxaflóamóti á laugardag - tilhögun

Sæl, öllsömul!

Á laugardag, 2. mars, verður leikið í Faxaflóamóti þegar att verður kappi við ÍA. Mun leikur þessi fara fram í Akraneshöllinni og hefjast kl. 16.

Allar stúlkur flokksins eru boðaðar, auk eftirfarandi stúlkna í 5. flokki: Eva, Hekla, Selma og Sylvía. Þá er María enn fremur boðuð.

Ráðgert er að fara á einkabifreiðum og er mæting við íþróttahúsið á Álftanesi kl. 14:15. Lagt verður af stað í framhaldi. Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til þess að skipuleggja sig innbyrðis og þeir sem hyggjast fara eru vinsamlegast beðnir um að staðfesta það hér inni á síðunni.

Öll fyrirsjáanleg forföll eiga að tilkynnast, það auðveldar skipulagningu.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.

Keflavík - Álftanes: 9-3

Sæl, öllsömul!

Við þjálfarar ætlum þá að fara örfáum orðum um æfingaleik við sameiginlegt lið Keflavíkur/Reynis/Víðis sem fram fór um síðustu helgi í Reykjaneshöll. 

Stúlkurnar voru nokkuð lengi í gang og léku ekki vel í fyrri hálfleik og Suðurneskjastúlkur gengu á lagið og skoruðu hvert markið á fætur öðru. Á köflum voru þó prýðilegir spilakaflar í hálfleiknum hjá okkar stúlkum en alltof ódýr mörk komu þó. Þá sköpuðu stúlkurnar sér nokkur góð marktækifæri sem ekki nýttust. Stóðu leikar 6-0 í leikhléi. 

Í síðari hálfleik var allt annað uppi á teningnum og var þá jafnræði með liðunum. Náðu bæði lið að skora þrjú mörk og urðu lyktir leiks 9-3, Suðurnesjastúlkum í vil. Mörk Álftaness gerðu: Salka 2 og Snædís 1.  

Heilt yfir erum við þjálfarar nokkuð sáttir við leik liðsins. Fyrri hálfleikur var slakur en síðari hálfleikur virkilega góður. Virkilega gaman var að sjá hvernig stúlkurnar rifu sig upp og gáfust ekki upp, heldur héldu áfram að leika sinn leik. Gefur þetta jákvæð fyrirheit um framhaldið.  

Birgir og Guðbjörn þjálfarar. 

Æfingaleikur við Keflavík á laugardag

Sæl, öllsömul!

Á laugardag, 23. febrúar, er ráðgert að leika æfingaleik við Keflavík. Mun leikur þessi fara fram í Reykjaneshöllinni og hefjast kl. 8:45.  

Allar stúlkur flokksins eru boðaðar, auk eftirfarandi stúlkna í 5. flokki: Eva, Hekla, Selma og Sylvía. Þá er María enn fremur boðuð.

Ráðgert er að fara á einkabifreiðum og er mæting við íþróttahúsið á Álftanesi kl. 7:45. Lagt verður af stað í framhaldi. Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til þess að skipuleggja sig innbyrðis og þeir sem hyggjast fara eru vinsamlegast beðnir um að staðfesta það hér inni á síðunni.

Öll fyrirsjáanleg forföll eiga að tilkynnast, það auðveldar skipulagningu.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.