Dósasöfnun í fjáröflunarskyni

Sæl, öllsömul!

Dósasöfnun í fjáröflunarskyni verður hjá 4. flokki stúlkna þriðjudaginn 27. nóvember nk. Um hefðbundna söfnun verður að ræða sem hefst kl. 18 við áhaldahúsið á Álftanesi.

Miðar um söfnunina munu verða afhentir stúlkum á æfingu á morgun, fimmtudag, 22. nóvember, sem og upplýsingar um hverfaskiptingu. Miðana þurfa stúlkur svo að bera út í hús á sunnudag eða fyrir æfingu á mánudag. Af þeim sökum er brýnt að allar stúlkur mæti á umrædda æfingu, sem er tækniæfing.  

Við söfnun er gert ráð fyrir að foreldrar/forráðamenn útvegi kerrur og/eða stórar bifreiðar til þess að flytja dósir, venju samkvæmt.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.