Leikur í Faxaflóamóti hjá A-liði á laugardag - tilhögun

Sæl, öllsömul!  

Á laugardag, 9. mars, verður leikið í Faxaflóamóti hjá A-liði þegar att verður kappi við Keflavík. Mun leikur þessi fara fram í Reykjaneshöllinni í Keflavík og hefjast kl. 10.

Liðsskipan er eftirfarandi: Birta, Eva Maren, Freyja, Guðný (m), Hekla, Katrín, Selma, Sylvía og Veronika.

Ráðgert er að fara á einkabifreiðum og er mæting við íþróttahúsið á Álftanesi kl. 8:30. Lagt verður af stað í framhaldi. Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til þess að skipuleggja sig innbyrðis og þeir sem hyggjast fara eru vinsamlegast beðnir um að staðfesta það hér inni á síðunni.  

Öll fyrirsjáanleg forföll eiga að tilkynnast, það auðveldar skipulagningu.  

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.

Leikið í Faxaflóamóti á laugardag

Sæl, öllsömul!

Athygli er hér vakin á því að A-liðið á leik í Faxaflóamóti á laugardag, 9. mars nk. kl. 10, þar sem att verður kappi við Keflavík. Mun leikur þessi fara fram í Reykjaneshöll.

Nánari tilhögun þessa verða kunngerð hér inni á síðunni á morgun, fimmtudag.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.

Æfing fellur niður í dag vegna kulda

Sæl, öllsömul!

Æfing fellur niður í dag, þriðjudag, vegna kulda og vindkælingar.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.