Íþróttasalur

 

Komið sæl.

Á milli jóla og nýárs stendur krökkunum til boða að mæta í 
íþróttasalinn og leika sér. Og verður þetta föstudaginn 28. des milli 13-15

Kv Guðbjörn

Jólafrí

Sæl, öllsömul!

Frí verður frá æfingum um jól og áramót. Nánar tiltekið er síðasta æfing fyrir jól þriðjudaginn 18. desember. Æfingar hefjast svo á ný mánudaginn 7. janúar nk.

Mögulegt er að boðið verði upp á tíma í íþróttahúsi milli jóla og nýárs en það verður auglýst sérstaklega, ef af verður. Iðkendur eru hvattir til að fylgjast með því sérstaklega inni á heimasíðunni.

Með jóla- og nýárskveðjum,

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.

Æfingaleikjum frestað

Sæl, öllsömul!

Ráðgerðum æfingaleikjum við FH, sem vera áttu á morgun, sunnudag, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Er þetta vegna veikinda þjálfara FH. Stefnt er á að umræddir leikir fari fram eftir áramót. 

Birgir og Guðbjörn þjálfarar. 

Æfingaleikir við FH á sunnudag

Sæl, öllsömul!

Á sunnudag, 16. desember, verða æfingaleikir hjá 5. flokki stúlkna þegar att verður kappi við FH, sem buðu okkar að leika umrædda leiki. Ráðgert er að tefla fram tveimur liðum sem leika munu við tvö af liðum FH. Leikir beggja liða munu hefjast kl. 9:30 umræddan dag og fara þeir fram að Ásvöllum í Hafnarfirði (úti). Leiktími verður ca 2x20 mínútur og verður líklega leikið á 1/4 vallar.  

Allar stúlkur flokksins eru boðaðar og mögulega einhverjar stúlkur úr 6. flokki en liðsskipan verður kunngerð á leikstað. Stúlkur þurfa að mæta umræddan dag um kl. 9:15 á Ásvelli, fullbúnar til leiks og helst í fatnaði merktum félagi. Keppnisskyrtur verða afhentar á leikstað.

Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til þess að skipuleggja sig innbyrðis svo tryggja megi að allar stúlkur komist á áfangastað. Öll fyrirsjáanleg forföll ber svo að tilkynna þjálfurum, það auðveldar skipulagingu.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.