Mótið á sunnudaginn

Sæl öll,

Ég vil þakka fyrir mótið núna um helgina þar sem strákarnir stóðu sig frábærlega og voru Álftanesi og sjálfum sér til sóma. Eina sem hefði mátt bæta var að kvarta minna í dómaranum, en ég fer yfir það með strákunum þar sem það á að vera algjörlega bannað að kvarta í dómurunum. Við byggjum ofan á þetta mót á næstu æfingum og gerum skemmtilegar og góðar æfingar svo reyni ég að fá æfingaleik sem fyrst fyrir þá.

Takk fyrir helgina!

Kv, Örn