Ég ætla að minna ykkur á fundinn sem frestaðist í síðustu viku. Fundurinn er núna á fimmtudaginn 23. janúar, farið verður yfir mót sumarsins og þá helst hvernig við ætlum að fjármagna þau. Fundurinn hefst stundvíslega kl 20:00 og verður hann í félagsaðstöðu íþróttahússins. Mikilvægt er að sem flestir mæti á þennan fund!
Foreldrafundurinn sem átti að vera núna á fimmtudaginn seinkar þangað til í næstu viku vegna mikilla anna hjá mér og því miður verð ég að færa þennan fund þangað til í næstu viku. Verður fundurinn á fimmtudaginn 23. janúar á sama tíma kl 20:00 í íþróttahúsinu.