Æfingin í dag fellur niður vegna veikinda.

Sæl öll,

Æfingin í dag fellur niður í dag vegna þess að ég er með mígreni. Næsta æfing er því á miðvikudaginn.
Kv, Örn

Frí á morgun föstudag

Sæl öll,

Það verður frí á æfingu á morgun föstudag þar sem ég er á leiðinni út úr bænum, og eflaust flest allir úr flokknum. Næsta æfing verður á mánudaginn á sama tíma og venjulega.
Kv, Örn

Æfingar að hefjast aftur!

Sæl öll,

Æfingar hefjast aftur eftir sumarfrí á morgun miðvikudaginn 24.júlí. Æfingatímar haldast enþá óbreyttir og svo stefnum við á 2 mót núna í ágúst. meira um það síðar.
Kv, Örn

Liðsskipan á Íslandsmótinu

Sæl öll,

Nú er ég búinn að raða upp í lið þó ég sé aðeins með 14 stráka skráða, en ég mun finna út úr því á morgun sem fyrst.

Lið 1: Adolf, Bjarni Leó, Dagur, Óli, Sveinn

Lið 2: Bessi, Hlynur, Kristján, Skarphéðinn, Tómas

Lið 3: Leó, Róbert, Stefán Emil, Stefán Smári.

Lið 1 og 3 spila fyrsta leik kl 15:00 og eiga þeir því að vera mættir ekki seinna en 14:30, lið 2 á fyrsta leik 15:40 og eiga þeir að vera mættir ekki seinna en 15:10.

Strákarnir eiga að mæta í takkaskóm og með legghlífar ég kem með búninga. Athugið að þar sem þetta er mót á vegum KSÍ þá er ekkert mótsgjald á þetta mót, bara mæta með bros á vör.

Kv, Örn