Páskafrí og Sjörnumót TM 26. apríl.
Komið sæl.
Síðasta æfing fyrir páskafrí verður föstudaginn 25.mars.
Það verða ekki æfingar í páskafríinu og hefjast svo aftur þegar skóli hefst.
Sjörnumót TM verður haldið í Garðabæ sunnudaginn 26.apríl.
Leikið er í fimm-manna liðum og er keppnisgjaldið 3500 kr.
Strákarnir fá fullt af leikjum, skemmtun og vegleg verðlaun í mótslok.
Ég ætla að biðja ykkur að fara inn á umfa.is / fótbolti / 7.flokkur og skrifa þar í athugasemd við greinina hvort sonur ykkar mæti á þetta mót.
Endilega verið búin að melda strákinn á mótið fyrir 10.apríl.
Þá veit ég hversu margir mæta og get skipt þeim í lið og slíkt.
Hafið það æðislega gott um páskana.
Kveðja,
Ragnar, Guðmundur og Guðjón.