Álftanes býður upp á körfuboltaæfingar í vetur fyrir 7. bekk og yngri. Við höfum ekki
getað haldið úti æfingum fyrir eldri þar sem iðkendur hafa verið of fáir.
Áhugasömum viljum við benda á öfluga flokka hjá körfuknattleiksdeild Stjörnunnar
og muna að athuga með frístundabílinn.
Þjálfarar verða Ragnar Arinbjarnarson og Jón Ólafur Magnússon.
Boðið verður upp á prufutímabil í byrjun vetrar og skorum við á alla, stráka og stelpur
að mæta og prófa.
Hingað inn verða svo settar upplýsingar varðandi æfingatíma þegar þær liggja fyrir.
Kveðja,
Raggi og Jónsi.