Skráning á Norðurálsmótið helgina 20. - 22. júní.


Kæru foreldrar stráka í 7. flokk Álftaness í fótbolta.Eins og við ræddum á nokkuð fjölmennum
foreldrafundi í mars þá er hefð fyrir því að 7.flokkur karla fari á stórt og skemmtilegt mót á Akranesi ár hvert.

Í stuttu máli þá er þetta mót þannig:

Það byrjar snemma á föstudegi (fyrir hádegi) með stuttri skrúðgöngu.

Leikirnir byrja snemma á laugardegi og mótið klárast eftir hádegi á sunnudegi með verðlaunaafhendingu.
Við fáum úthlutað tjaldstæði og hefur fólk verið að fara með tjöld, fellihýsi eða tjaldvagna. Þar höfum við
slegið upp búðum sem skapast ansi hreint góð stemming á.

Strákarnir fá skólastofu og gista þar saman á dýnum og svefnpokum.

Innifalið í mótsgjaldinu er gistiaðstaðan, fullt fæði, (morgun-, hádegis-, og kvöldmatur),
verðlaun og frítt í sund alla helgina.


Þetta mót kostar 18.000 á hvern þátttakenda (inn í því er keppnisgjald 13.000, staðfestingargjald
2.000 sem UMFÁ hefur lánað okkur fyrir og vallarnesti og liðsstjórafæði 3.000).


Þetta gjald þarf að greiða inn á banki: 318 hb: 26 reikn: 1332 kennit: 1502765279 upph: 18.000
og muna að skrifa Norðurálsmót og nafn stráks í skýringu.



A.T.H til að sonur ykkar teljist þáttakandi á þessu móti þarf að greiða gjaldið fyrir miðnætti þann 4. júní n.k.

Síðasta sumar fóru 24 strákar frá Álftanesi á þetta skemmtilega mót og gaman væri að við næðum svipuðu í ár.



Nánari upplýsingar um mótið er að finna á síðunni kfia.is undir Norðurálsmót 2014.
Kveðja,
Ragnar Arinbjarnar.


Fótboltaæfingar færast út á grasvöll.


Komið sæl.

Frá og með næsta mánudegi 12.maí verða æfingarnar allar (mánudags, miðvikudags og föstudags) úti í grasvellinum við Frístund. Æfingarnar verða á sama tíma og venjulega. Vinsamlegast munið að klæða strákana eftir veðri.

A. T. H. mikilvægt að allir sem þurfa að klæða sig eða skipta um föt fyrir æfingar EIGA að koma inn í klefa um gulu hurðina á enda íþróttahússins. Þeir sem mæta tilbúnir á æfingar mega mæta beint út á grasvöll.
Þetta gerum við svo við völdum ekki ónæði fyrir sundlaugargesti og skemmum ekki steinagólfið í íþróttamiðstöðinni.

Allar nánari upplýsingar hjá Ragga í síma 8631502.

Stjörnumót TM.

Ég vil koma á framfæri kærum þökkum til ykkar, foreldra, strákana og þjálfara fyrir
árangursríkan, skemmtilegan og sólríkan dag.
Næsta verkefni er stutt mót í Borgarnesi í lok maí sem ég auglýsi bráðlega.

Kveðja,
Ragnar.

Stjörnumót TM sunnudaginn 27.apríl - liðsskipan og leikir.

Nú höfum við fengið leikjadagskrá fyrir mótið í Garðabæ á sunnudaginn 27. apríl.
Við erum með 18 stráka sem leika í þremur liðum og fá öll liðin sex leiki á mótinu.
ATH muna að koma með 2500 krónur með sér til að borga þátttökugjaldið.
Einnig þarf að hafa hollt og gott nesti, búning ( við komum með aukabúninga ) og markmannshanska ef þeir vilja spila í marki.

Álftanes 1 leikur í riðli B2 og er skipað: Daníel, Matthías, Kári, Elmar, Róbert og Sveinn.
Fyrsti leikur þeirra hefst kl: 9.15 á velli númer 6 og þurfa allir að vera mættir ekki seinna en kl: 9.00.
Síðasti leikur þeirra hefst kl: 12.15.

Álftanes 2 leikur í riðli E2 og er skipað: Eyþór, Andri, Axel, Elvar, Hlynur og Gabríel.
Fyrsti leikur þeirra hefst kl: 12.30 á velli númer 9 og þurfa allir að vera mættir ekki seinna en kl: 12.10.
Síðasti leikur þeirra hefst kl: 15.30.

Álftanes 3 leikur í riðli F2 og er skipað: Ísleifur, Ási, Kristófer, Guðjón, Þorsteinn og Björgvin.
Fyrsti leikur þeirra hefst kl: 12.45 á velli númer 6 og þurfa allir að vera mættir ekki seinna en kl: 12.25.
Síðasti leikur þeirra hefst kl: 15.45.
Allar nánari upplýsingar hjá Ragga í síma 8631502 eða senda tölvupóst.

Sjáumst í fótbolta-sumarskapi,
Þjálfarar.