Rey cup, leikjadagskrá
Vek athygli á að búið er að birta dagskrá leikja inni á vefsíðu Rey cup, www.reycup.is. Um ræðir eftirfarandi vefslóð: http://www.reycup.is/D10/_Files/ReyCup_21.7_Leikjadagskra_2014_drog.pdf.
Eins og sjá má er um að ræða einn kappleik á fimmtudag, tvo á föstudag, tvo á laugardag og loks einn kappleik um sæti á sunnudag.
Eftir því sem þurfa þykir mun nánari tilhögun verða birt hér inni á heimasíðunni eigi síðar en á miðvikudag en að kvöldi þess dags verður mótið sett.
Birgir þjálfari.