Leik í Lengjubikar frestað
Búið er að fresta leik í Lengjubikar KSÍ gegn Fram, sem vera átti í kvöld, sökum þess að Fram hefur ekki í lið. Leikur þessi mun annaðhvort fara fram 21. eða 28. apríl nk.
Næsta æfing því á fimmtudag kl. 19 en um ræðir sameiginlega æfingu með 2. flokki Stjörnunnar.
Vek svo athygli á því að eftirleiðis munum við æfa á mánudögum frá kl. 20 í Búrinu í Garðabæ. Sá æfingatími kemur í stað sunnudagsæfinga.
Birgir Jónasson þjálfari.