Æfingin á morgun, miðvikudag, með Hvíta riddaranum

Sælar, stúlkur.

Á morgun, miðvikudag, ætlum við að taka sameiginlega futsal-æfingu með Hvíta riddaranum.

Fyrirkomulag verður þannig að Hvíti riddarinn kemur til okkar (líklega um tíu stúlkur) á æfingatíma og munum við láta æfinguna rúlla í spili, þ.e. við gegn þeim (leikið eftir futsal-reglum). Nánara fyrirkomulag varðandi liðsskipan verður kunngert á leikstað.

Engir dómarar verða og munum við leika í vestum. Þá reynum við að fara varlega í öll návígi þannig að harka sé í lágmarki. Um æfingu er að ræða.

Vil biðja stúlkur um að mæta tímanlega á morgun þannig að unnt verði að byrja upp úr kl. 18.

Birgir Jónasson þjálfari.