Fjáröflun - SÁÁ álfurinn
Núna er komið að hinni árlegu fjáröflun á SÁÁ álfinum og mun hún byrja núna á miðvikudaginn 7 og stendur til 11 Maí og munu stelpur úr 4 flokki sjá um þessa sölu.
Að þessu sinni verður Álfurinn seldur til að byggja upp starfsemi barna- og fjölskyldudeildar SÁÁ.
Þetta er í tuttugasta og fimmta sinn sem SÁÁ leitar til almennings með álfasölunni.
Fjáröflunin skiptir jafnvel enn meira máli nú en oftast áður.
Slagorðið í ár er Álfurinn fyrir unga fólkið.
Stelpurnar munu selja á Álftanesi og mun skipting á skiptast jafnt niður á þær stelpur sem taka þátt, gott er að stelpurnar verði tvær saman með td tvö hverfi þar sem ekki er til ótakmarkað magn af posum.
Söluhagnaður:
Hver álfur er seldur á 2000 kr og fá stelpurnar 400 kr í sölulaun fyrir hvern seldan álf
Afhending:
Reiknað er með að afhenda álfinn og greiðslu posa til sölu eftir æfingu núna á þriðjudaginn útí íþróttarhúsi (hjá hraðbankanum)
Sala:
Best er að selja strax og álfurinn verður afhendur til að hámarka hjá okkur söluna áður en sala byrjar í verslunum.
Skil / Uppgjör:
Strax og búið er að selja í úthlutuðu hverfi skal hafa samband við Ármann í síma 840-6836 til að athuga hvort að einhver hverfi séu eftir og eða skila uppgjöri, þar sem leiga á posum er stór kostnaðarliður hjá SÁÁ
Áríðandi:
Er að passa vel uppá Álfana að þeir tínist ekki því það er dregið frá sölulaunum okkar í uppgjöri
Það er til mikils að vinna fyrir stelpurnar og ekki skemmir fyrir að málefnið er gott
Hlakka til að sjá sem flestar stelpur á þriðjudaginn eftir æfingu
Með bestu kveðju / Best regards
Ármann Rafn Úlfarsson
Mobile: +354 840-6836
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.