Sæl, öllsömul!
Frí verður frá æfingum um jól og áramót. Nánar tiltekið er síðasta æfing fyrir jól þriðjudaginn 18. desember. Æfingar hefjast svo á ný mánudaginn 7. janúar nk.
Mögulegt er að boðið verði upp á tíma í íþróttahúsi milli jóla og nýárs en það verður auglýst sérstaklega, ef af verður. Iðkendur eru hvattir til að fylgjast með því sérstaklega inni á heimasíðunni.
Með jóla- og nýárskveðjum,
Birgir og Guðbjörn þjálfarar.