Sæl öll,
Skipulag ferðarinnar
Brottför með Herjólfu er miðvikudaginn 26.07.2013 kl 16:00 og heimferð með Herjólfi er áætluð 00:30 aðfaranótt sunnudags.
Fjöldi leikmanna er 18 stk og farastjórarog þjálfari eru 5 stk.
Þeir sem hafa gefið kost á sér í farastjórn eru : Einar (Georg Ingi ) , Ingólfur (sveinn og kristjánn) , Ágúst (Tómas ) , Jón Örn (Bessi) . Jafnframt vitum við að amk tveimur foreldrum sem koma til eyja á mðvikudaginn þannig að ef allir fararstjórar og þjálfari fara á bíl þá ætti að vera hægt að koma drengjunum í þessa 5-7 bíla. Við eigum pláss fyrir 2 bíla með herjólfi með drengjunum , mjög gott væri ef hægt er að redda bifreið sem tekur 7 manns, það léttir undir varðandi allar ferði sem þarf að fara í eyjum. Þetta þarf að skipuleggja þegar nær dregur.
Á miðvikudaginn er eingöngu verið að koma sér fyrir í gistiaðstöðunni . Við þurfum að hugsa fyrir næringu á miðvikudagskvöldið(seinnipart) . keppni hefst á fimmtudag og lýkur um miðjan dag á laugadaginn með lokaathöfn og verðlaunaafhendingu. Það þarf að labba talsvert á mótssvæðinu milli leikvalla – gistingar og matsals og því mikilvægt ef einhverjir foreldrar sem koma á bíl til eyja geta létt undir með okkur varðandi að skuttla í mat og til baka . Þegar nær dregur þarf að skoða með heimferð fyrir drengina og passa að allir fái far heim .
Varðandi kostnað þá kostar 17.500 kr fyrir hvern þátttakanda og 17.500 kr fyri hvert lið . Með öllu má áætla að þetta kosti um 25-27 þúsund á hvern dreng með öllu. Það hafa frekar fáir greitt staðfestingargjaldið sem er 7.500 og skal leggjast inná reikning ???. Biðjum við ykkur að gera það hið fyrsta . Varðandi safnanir þá erum við að leggja loka hönd á uppgjör vegna þess og munum birta það von bráðar.
Hægt er að fá gistingu hjá KFUM og höfum við leigt af þeim sal þar sem fólki er velkomið að gista . Heildar kostnaður við leiguna er 40þús sem ætlunin er að skipta niður þá sem gista . Endilega látið Einar G vita ef þið viljið nýta ykkur gistirýmið, eins og er er nóg pláss .
Á fundinum var ákveðið af leggja útí sameiginlega merktan fatnað heldur notast við bláu hettupeysurnar sem strákarnir fengu á síðasta ári.