Leikur í Borgunarbikar KSÍ
Á sunnudag verður leikið í Borgunarbikar KSÍ og verða mótherjar Hvíti riddarinn. Leikið verður á Samsung-vellinum og hefjast leikar kl. 14.
Stúlkur þurfa að vera mættar á leikstað umræddan dag 12:30 með allan búnað meðferðis. Anna Hlín Sverrisdóttir sjúkraþjálfari kemur en hún mun vera með okkur í sumar, a.m.k. á heimaleikjum okkar.
Eftirfarandi stúlkur eru hér með boðaðar í umræddan leik en um ræðir þær stúlkur sem tiltækar eru: Þórdís Edda, Rut, Margrét Eva, Oddný, Guðleif Edda, Júlíana, Erna, Sigrún Auður, Perla, Eyrún, Guðlaug, Elsa, Sunna og Elín.
Loks vil ég biðja stúlkur um að vanda sig í undirbúningi fyrir umræddan leik í samræmi við það sem rætt var um á æfingu nú fyrr í dag.
Birgir Jónasson þjálfari.