Breyttur æfingatími á morgun, miðvikudag

Sæl, öllsömul!

Það athugast að á morgun, miðvikudag, verður æfing frá kl. 14. Er þetta vegna kappleiks á Bessastaðavelli sem fram fer á hefðbundnum æfingatíma. 

Birgir og Guðbjörn þjálfarar. 

Engin æfing á mánudag

Sæl, öllsömul!

Það athugast að á morgun, mánudaginn 5. ágúst, verður engin æfing.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.  

Fundur vegna Pæjumótsins á Siglufirði

Ágætu foreldrar/forráðamenn!

Hér með er boðað til fundar með ykkur á þriðjudag, 6. ágúst, kl. 19:30. Tilefni fundarins er Pæjumótið á Siglufirði sem fram fer 9.-11. ágúst nk. Fundarstaður er félagsaðstaðan í íþróttahúsinu. 

Ráðgert er að tefla fram tveimur liðum á mótinu. Fyrirfram er gert ráð fyrir að allar stúlkur flokksins mæti til leiks nema tilkynnt sé um annað.

Það athugast að stúlkum í 6. aldursflokki, sem æft hafa og leikið með 5. flokki, stendur til boða að taka þátt í umræddu móti.

Allar nánari upplýsingar um mótið má svo finna undir eftirfarandi netslóð: http://www.kfbolti.is/p%C3%A6jumottm

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.

Æfingar í næstu viku

Sæl, öllsömul!

Það athugast að meðan við þjálfarar dveljum í Danmörku með 4. aldursflokk verða æfingar á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag á hefðbundnum tíma, þ.e. frá 17 til 18, sem forfallaþjálfarar munu annast. Æfingar falla á hinn bóginn niður á morgun, mánudag, og á mánudag í næstu viku (29. júlí). 

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.