Sæl, öllsömul!
Á morgun, miðvikudag, 20. júní, verður leikið í Íslandsmóti hjá A-liðum þegar att verður kappi við Gróttu. Fer leikur þessi fram á Gróttuvelli á Seltjarnarnesi. Liðsskipan verður eftirfarandi:
Ásta, Birta, Eva, Freyja, Hekla, Hólmfríður Sunna (M), Ísabella, Katrín, Selma, Sylvía (F) og Veronika.
Tilkynna ber um öll fyrirsjáanleg forföll. Það auðveldar skipulagningu.
Umræddur leikur hefst kl. 15 og þurfa stúlkur að vera mættar á leikstað ca 30 mínútum fyrir leik, fullbúnar til leiks. Keppnisskyrtur verða svo afhentar á leikstað.
Vegna leiktíma eru foreldrar/forráðamenn hvattir til þess að skipuleggja sig innbyrðis og svo tryggja megi að allar stúlkur komist á áfangastað.
Birgir og Guðbjörn þjálfarar.