Leikir í Faxaflóamóti á miðvikudag við Hauka - liðsskipan og tilhögun

Sæl, öllsömul!

Leikir við Hauka í Faxaflóamóti hjá A- og B-liði munu fara fram að Ásvöllum í Hafnarfirði á miðvikudag, 1. maí nk. Leikirnir hefjast kl. 10:30 en þeir munu báðir fara fram á sama tíma. Um ræðir tvífrestaða leiki. Liðskipan verður eftirfarandi:

A-lið: Birta, Eva, Freyja, Guðný (M), Hekla, Katrín, Selma, Sylvía og Veronika.

B-lið: Aþena Ösp, Ásta Glódís, Elsa María, Hólmfríður Sunna (M), Ísabella Líf, Rebekka Steinunn, Thelma Siv og Viktoría. Þá eru stúlkur í 6. flokki, sem æft hafa með flokknum, enn fremur boðaðar. Um ræðir Anítu, Diljá, Hönnu Sól, Rebekku, Silju og Svandísi.

Stúlkur þurfa að mæta um kl. 10 að Ásvöllum í Hafnarfirði, fullbúnar til leiks. Keppnisskyrtur verða afhentar á leikstað.

Brýnt er að tilkynna um öll forföll, það auðveldar skipulagningu. Verði forföll munu mögulega einhverjar stúlkur færast til í liðum, þá úr B-liði í A-lið.

Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til þess að skipuleggja sig innbyrðis svo tryggja megi að allir komist á áfangastað.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.

Æfingaleikir og mót hjá B-liði Álftaness - stutt umfjöllun

Sæl, öllsömul!

Það var nóg um að vera hjá stúlkunum í B-liði Álftaness á sunnudag. Fyrst voru leiknir tveir æfingaleikir við Breiðablik í Fífunni og í framhaldi var tekið þátt á móti á vegum Stjörnunnar sem fram fór á Stjörnuvelli þar leiknir voru fjórir leikir. Lið Álftaness var gestalið og lék í keppni D-liða.

Úrslit urðu sem hér segir (markaskorarar innan sviga þar sem það á við)

Æfingaleikir við Breiðablik:
Álftanes – Breiðablik: 2-2 (Guðný 2)
Álftanes – Breiðablik: 2-3 (Aníta 1, Silja 1)

Mót á Stjörnuvelli:
Álftanes – Stjarnan: 0-6
Álftanes – Fram: 0-2
Álftanes – FH: 0-1
Álftanes – Fram 2: 0-0

Varð lið Álftaness í 7.-8. sæti mótsins sem er vel viðunandi en þess ber að geta að mikil forföll voru, enn og aftur, og til að mynda enginn skiptimaður í síðustu þremur leikjum mótsins. Af þeim sökum voru stúlkur orðnar þreyttar.

Heilt yfir er ég ánægður með frammistöðu stúlknanna sem hafa sýnt miklar framfarir. Að sjálfsögðu munu þær framfarir halda áfram og smám saman skila sér í hagstæðari úrslitum.

Loks vil ég nefna að það er eilítið áhyggjuefni hvað fáar stúlkur eru að skila sér í verkefni þau sem í boði eru. Þessu þurfum við að breyta í sameiningu enda leggjum við þjálfarar mikið á okkur til þess að finna verkefni fyrir stúlkurnar. Það er til lítils ef þátttaka er dræm.   

Birgir Jónasson þjálfari.

Leikjum í Faxaflóamóti frestað

Sæl, öllsömul!

Ráðgerðum leikjum í Faxaflóamóti, sem vera áttu á laugardag við ÍBV hjá A- og B-liði, hefur verið frestað þar til síðar. Bæði getur ÍBV ekki leikið á umræddum tíma og vallaraðstæður á Bessastaðavelli leyfa ekki slíkt. Líklega munu umræddir leikir fara fram í kringum 10. maí.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.