Breyttur æfingatími á morgun, þriðjudag, 27. maí

Sæl, öllsömul!

Það athugast að á morgun, þriðjudaginn 27. maí, verður æfing frá kl. 17:15 í stað kl. 18. Er þetta vegna kappleiks á Bessastaðavelli. 

Birgir þjálfari.

Æfingin í dag er frá kl. 18

Sæl, öllsömul!

Það athugast að æfingin í dag, fimmtudaginn 22. maí, er á grasvellinum frá kl. 18.

Fyrri hluti æfingar verður með tæknilegu ívafi en síðari hlutinn hefðbundinn. Ekki er áskilið að stúlkur mæti með knött. 

Birgir þjálfari.

Æfingin á fimmtudag á grasvellinum kl. 17

Sæl, öllsömul!

Æfingin á morgun, fimmtudag, verður á grasvellinum frá kl. 17. Um blandaða æfingu verður að ræða, þ.e. fyrri hlutinn verður tækniæfing en hinn síðari leikfræðilegur. 

Birgir þjálfari.

Æfingar færast á grasvöllinn

Sæl, öllsömul!

Frá og með morgundeginum, mánudeginum 12. maí, færast allar æfingar flokksins af sparkvellinum yfir á grasvöllinn.

Fyrst um sinn verður æfingatími óbreyttur en þegar nær dregur mánaðamótum mun æfingatími taka einhverjum breytingum og æfingar þá að lengjast í allt að 75 mínútur.  

Birgir þjálfari.