Af óviðráðanlegum ástæðum fellur tækniæfing niður á morgun, fimmtudag.
Þess í stað verður æfing á föstudag en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvenær hún verður en væntanlega verður hún frá kl. 17. Umrædd æfing verður blönduð æfing, fyrri hluti hennar verður tækniæfing en síðari hlutinn leikfræði.
Núna er komið að hinni árlegu fjáröflun á SÁÁ álfinum og mun hún byrja núna á miðvikudaginn 7 og stendur til 11 Maí og munu stelpur úr 4 flokki sjá um þessa sölu.
Að þessu sinni verður Álfurinn seldur til að byggja upp starfsemi barna- og fjölskyldudeildar SÁÁ. Þetta er í tuttugasta og fimmta sinn sem SÁÁ leitar til almennings með álfasölunni. Fjáröflunin skiptir jafnvel enn meira máli nú en oftast áður. Slagorðið í ár er Álfurinn fyrir unga fólkið.
Stelpurnar munu selja á Álftanesi og mun skipting á skiptast jafnt niður á þær stelpur sem taka þátt, gott er að stelpurnar verði tvær saman með td tvö hverfi þar sem ekki er til ótakmarkað magn af posum.
Söluhagnaður: Hver álfur er seldur á 2000 kr og fá stelpurnar 400 kr í sölulaun fyrir hvern seldan álf
Afhending: Reiknað er með að afhenda álfinn og greiðslu posa til sölu eftir æfingu núna á þriðjudaginn útí íþróttarhúsi (hjá hraðbankanum)
Sala: Best er að selja strax og álfurinn verður afhendur til að hámarka hjá okkur söluna áður en sala byrjar í verslunum.
Skil / Uppgjör: Strax og búið er að selja í úthlutuðu hverfi skal hafa samband við Ármann í síma 840-6836 til að athuga hvort að einhver hverfi séu eftir og eða skila uppgjöri, þar sem leiga á posum er stór kostnaðarliður hjá SÁÁ
Áríðandi: Er að passa vel uppá Álfana að þeir tínist ekki því það er dregið frá sölulaunum okkar í uppgjöri
Það er til mikils að vinna fyrir stelpurnar og ekki skemmir fyrir að málefnið er gott
Hlakka til að sjá sem flestar stelpur á þriðjudaginn eftir æfingu