Æfing á morgun, föstudag

Sæl, öllsömul!

Þar sem tvær æfingar hafa verið felldar niður í vikunni munum við æfa á morgun, föstudag. Æfingin mun fara fram á sparkvellinum frá kl. 14:30. Guðbjörn Harðarson mun stjórna æfingu en um verður að ræða spilaæfingu. 

Birgir þjálfari.

Æfing fellur niður vega öskudags

Sæl, öllsömul!

Æfing í dag, miðvikudag, fellur niður vegna skemmtunar í íþróttahúsinu í tilefni af öskudegi. Reynt verður að hafa æfingu á föstudag í staðinn.

Birgir þjálfari.

Dósasöfnun mánudaginn 3. mars nk.

Sæl, öllsömul!

Dósasöfnun verður í fjáröflunarskyni hjá 4. flokki stúlkna á mánudag, 3. mars nk. Um hefðbundna söfnun verður að ræða sem hefst kl. 18 við áhaldahúsið á Álftanesi. Athygli er vakin á því að um sameiginlega söfnun með 4. flokki drengja er að ræða.

Miðar um söfnunina munu verða afhentar stúlkum á æfingu á morgun, föstudag, sem og upplýsingar um hverfaskiptingu. Miðana þurfa stúlkur svo að bera út í hús eigi síðar en á sunnudag.

Við söfnun er gert ráð fyrir að foreldrar/forráðamenn útvegi kerrur og/eða stórar bifreiðar til þess að flytja dósir, venju samkvæmt.

Birgir þjálfari.